Gjaldskrá
Lögum samkvæmt ber að innheimta virðisaukaskatt af þjónustu lögmanna. Því leggst virðisaukaskattur á alla gjaldaliði í gjaldskránni.
Þóknun fyrir önnur lögmannsstörf tekur mið af gjaldskrá hverju sinni, nú kr. 25.000 pr. klst.
Gjaldskrá þessi gildir frá útgáfudagsetningu og getur breyst án fyrirvara.
Innheimtuþóknun
Í málum þar sem send eru út löginnheimtubréf er greitt fast gjald að viðbættu hlutfalli af höfuðstól.
Grunngjald innheimtuþóknunar er kr. 8.900 að viðbættum:
25% af fyrstu kr. 95.000
20% af næstu kr. 90.000
15% af næstu kr. 555.000
10% af næstu kr. 850.000
5% af næstu kr. 3.000.000
3% af næstu kr. 50.000.000
2% af því sem umfram er
Með ítrekun löginnheimtubréfs bætist við kr. 5.000 á ofangreint gjald.
Í málum þar sem stefnt hefur verið fyrir héraðsdómi, sem lýkur án aðalmeðferðar með sátt, áritun eða greiðslu fyrir eða eftir þingfestingu.
Grunngjald innheimtuþóknunar er kr. 25.000 að viðbættum:
15% af fyrstu kr. 1.500.000
10% af næstu kr. 2.000.000
5% af næstu kr. 8.500.000
3% af næstu kr. 50.000.000
2% af því sem umfram er
Í málum þar sem stefnt hefur verið fyrir héraðsdómi og fara í aðalmeðferð greiðist grunngjald kr. 25.000 auk tímagjalds skv. gjaldskrá.
Önnur gjöld
Uppgjör við kröfuhafa
Að meginreglu er það greiðandi kröfu sem greiðir innheimtukostnað og skulu greiðslur ráðstafast með eftirfarandi hætti:
1. Fyrst til greiðslu þóknunar og kostnaðar
2. Næst til greiðslu vaxa
3. Síðast til greiðslu höfuðstóls
Kröfuhafi greiðir ávallt dæmdan málskostnað sem og grunngjöld í málum þar sem löginnheimta reynist árangurslaus innan 120 daga.
Heimilt er að innheimta ofangreind gjöld af kröfuhafa eftir að til þeirra hefur verið stofnað, hafi greiðandi ekki greitt eða samið um greiðslu þeirra.
Við uppgjör mála er tekið tillit til þess kostnaðar sem þegar er greiddur af kröfuhafa.
Virðisaukaskattur
Við allar fjárhæðir samkvæmt gjaldskrá þessari bætist 24% vsk. í ríkissjóð.
Til viðbótar þóknunar er gerð krafa um greiðslu alls útlagðs kostnaðar auk vaxta af útlögðum og áföllnum kostnaði.
Kópavogi, 28. mars 2022